Fréttasafn

Aríel Pétursson tekinn við formennsku í Sjómannadagsráði

 

Aríel Pétursson, varaformaður Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins frá síðasta aðalfundi sem fram fór í vor, tók í dag, 1. september, við formennsku í ráðinu í stað Hálfdans Henryssonar sem starfað hefur óslitið með Sjómannadagsráði í 34 ár. Hálfdan var kosinn í ráðið 1987 þar sem hann tók að sér ritnefndarstörf fyrir Sjómannadagsblaðið og gegndi því embætti í um aldarfjórðung. Hálfdan var síðan kjörinn í stjórn Sjómannadagsráðs 1993 og hefur síðan þá gegnt starfi ritara og gjaldkera Sjómannadagsráðs auk varaformennsku sem hann gegndi um árabil, eða allt þar til hann tók við sem formaður í maí 2017.

Aríel er 34 ára, fæddur í Reykjavík 22. nóvember 1987. Aríel er menntaður í skipstjórnarfræðum frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík og frá Sjóliðsforingjaskóla danska sjóhersins í Kaupmannahöfn þaðan sem hann útskrifaðist 2020. Aríel er kvæntur Hrefnu Marín Sigurðardóttur, dönskukennara og eiga þau þrjú börn; Jökul Orra (7 ára), Esju Marín (5 ára) og Eld Hrafn (2 ára). Aríel og Hrefna eru búsett í Garðabæ. Aríel hefur hingað til starfað sem yfirstýrimaður á freigátum danska sjóhersins, en starfaði áður á togurum íslenskra útgerða, m.a. sem stýrimaður, auk skipa Landhelgisgæslunnar þar sem hann var einnig stýrimaður.

Málefni hjúkrunarheimila í deiglunni

Aríel tekur við formennsku í stjórn Sjómannadagsráðs á ákveðnum tímamótum, þar sem málefni hjúkrunarheimila og búsetuúrræði aldraðra á Íslandi eru mjög í deiglunni um þessar mundir. Sjómannadagsráð er m.a. eigandi Hrafnistuheimilanna sem starfrækir í dag átta hjúkrunarheimili í fimm sveitarfélögum á suðvesturhorni landsins, og íbúðaleigufélagsins Naustavarar, sem á og rekur ríflega 260 leiguíbúðir fyrir sextíu ára og eldri á höfuðborgarsvæðinu. Hrafnistaer ein stærsta heilbrigðisstofnun landsins og rekur um fjórðung allra hjúkrunarrýma á landinu. Íbúar heimilanna eru alls um 800 og dagdvalargestir á fjórða hundrað. Um 1.700 manns vinna á Hrafnistu sem skipar henni á bekk með fjölmennari vinnustöðum landsins þar sem þjónusta er veitt allan sólarhringinn alla daga ársins.

 

Meðfylgjandi mynd var tekin þegar Hálfdan Henrysson fráfarandi formaður afhenti í gær, 31. ágúst, Aríel Péturssyni lyklavöldin að skrifstofu Sjómannadagsráðs sem er til húsa að Hrafnistu í Laugarási Reykjavík.

 

 

Lesa meira...

Tilkynning frá Hálfdani Henryssyni formanni Sjómannadagsráðs

 

Það tilkynnist hér með að ég undirritaður hef látið af störfum sem formaður Sjómannadagsráðs að eigin ósk.

Ég vil færa íbúum Hrafnistuheimilanna einlæga kveðju mína og þakklæti fyrir vináttu á liðnum árum, ennfremur starfsfólki Hrafnistuheimilanna, starfsfólki happdrættis DAS, Naustavarar og Sjómannadagsráðs fyrir samvinnu og vináttu. Hér hefur verið gott að vinna og hér hef ég fengið að taka þátt í leik og starfi.  Við starfi mínu hefur tekið ungur maður að nafni Aríel Pétursson, stýrimaður og sjóliðsforingi, og óska ég honum allra heilla og velfarnaðar í þessu mikilsverða starfi.  Það er von mín og trú að starf okkar muni í náinni framtíð eflast og stækka og verða þeim öldruðu sem hjá okkur eiga heima sú stoð og sú stytta sem stefnt var að í upphafi og unnið hefur verið að í rúm áttatíu ár.

 

Í einlægri þökk. 

  

Kær kveðja,

Hálfdan Henrysson,

fráfarandi stjórnarformaður

Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins.

 

 

Lesa meira...

Tilkynning frá Neyðarstjórn Hrafnistu til íbúa og aðstandenda

 

Kæru íbúar og aðstandendur.

Flest allir íbúar Hrafnistuheimilanna hafa nú fengið 3ja skammtinn af bóluefni við Covid og ættu því að vera betur varðir en áður gegn Covid-smiti. Mikilvægt er þó að hafa í huga að fjöldi fólks í samfélaginu er að greinast með Covid og líklegt að lítið muni draga úr því næstu vikurnar, sérstaklega í ljósi þess að skólarnir eru að byrja af fullum krafti.

Vegna 3ju bólusetningar íbúanna telur Neyðarstjórn Hrafnistu svigrúm til  að draga úr þeim aðgerðum sem gripið var til í kringum Verslunarmannahelgina.

Þær breytingarnar sem verða gerðar nú eru eftirfarandi:

  1. Breyting tengt andlitsgrímuskyldu gesta á herbergjum íbúa.
  • ALLIR gestir þurfa að bera andlitsgrímu við komu á heimilin.
  • Bólusettir gestir: Geta tekið niður andlitsgrímu inn á herbergi íbúa.
  • ATHUGIРað óbólusettir / hálfbólusettir gestir þurfa að vera með andlitsgrímur inn á herbergi íbúa.
  • Ekki er heimilt að vera með margnota grímur.

        2. Fjöldi gesta í heimsókn.

  • Neyðarstjórn dregur nú til baka þá beiðni til aðstandenda/gesta að það sé sami aðilinn sem komi í heimsókn nokkra daga í röð og skipti síðan við annan.
  • Fleiri en einn aðstandandi/gestur getur komið í heimsókn á hverjum tíma.
  • Neyðarstjórnin biðlar samt áfram til aðstandenda/gesta að sýna skynsemi og horfa til stöðunnar í samfélaginu á hverjum tíma.

       3. Hópastarf/samkomur og stórar samverustundir

  • Aftur verður leyfilegt að vera með hópastarf/samkomur og stórar samverustundir á Hrafnistuheimilunum.
  • Sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun íbúa getur aftur farið fram í þeim rýmum sem til þess eru ætluð á hverju heimili fyrir sig.

Nánar um gildandi reglur á Hrafnistuheimilunum tengt Covid-19 má lesa HÉR í bréfi sem neyðarstjórn Hrafnistu hefur sent frá sér til íbúa og aðstandenda. 

Kær kveðja,

Neyðarstjórn Hrafnistu. 

 

Lesa meira...

Þörf umræða um málefni aldraðra

 

Í vikunni birtist grein á visir.is eftir Björn Bjarka Þorsteinsson þar sem hann bendir á þörfina fyrir umræðu um málefni aldraðra. Björn Bjarki er framkvæmdastjóra Brákahlíðar og formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Grein á visir.is: Þörf umræða um málefni aldraðra

 

Þörf umræða um málefni aldraðra

Heilbrigðisþing var haldið fyrir skömmu. Umræðuefnið var nýútkomin skýrsla varðandi aðbúnað og þjónustu við aldraða. Umræðan er tímabær og í raun löngu tímabær, um það hvaða aðstæður og aðbúnað við viljum veita þeim sem eru orðnir aldraðir og þurfa þjónustu með einum eða öðrum hætti sökum breytinga á heilsufari.

Höfum hugfast að sem betur fer búa fleiri en færri aldraðir við góða heilsu og eru sjálfum sér nægir um allar þarfir daglegs lífs. Það hefur mikil fjölgun átt sér stað í þeim hópi sem teljast aldraðir og ljóst miðað við allar spár og tölfræði að það á enn eftir að fjölga hlutfallslega í þeim hópi.

Á fyrrnefndu heilbrigðisþingi var rætt um möguleika sem felast í aukinni þjónustu heim til þeirra sem þurfa aðstoð af einhverju tagi og að aukin þjónusta heim til fólks drægi úr þörf á fjölgun hjúkrunarrýma. Það er von undirritaðs að svo sé og verði, að samfélagið allt, ríki og sveitarfélög, komi sér saman um hvernig eigi að byggja upp þjónustunet, um allt land, þannig að öldruðum sé gert kleift að vera sem lengst heima hjá sér og halda sitt eigið heimili. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd, því miður vil ég segja, að það er og verður alltaf ákveðið hlutfall aldraðra sem mun eiga við alvarlegan heilsubrest að ræða af einhverju tagi og þá getur það verið besta lausnin fyrir viðkomandi einstakling að fá inni á hjúkrunarheimili í nærsamfélagi viðkomandi. Þar fær einstaklingurinn aðstoð og skapar sér þar notalega aðstöðu og á vonandi áhyggjulaust ævikvöld.

Það vantar millistig frá því að vera búandi heima og geta verið sjálfbjarga á allan hátt og yfir í þá stöðu að vera kominn í þörf fyrir að flytja inn á hjúkrunarheimili. Það er um þetta sem umræðan þarf að snúast, ekki að beina spjótum sínum að starfssemi hjúkrunarheimila og því frábæra starfsfólki sem á heimilunum starfar landið um kring. Það voru afar mikil vonbrigði og olli í raun sárindum á meðal starfsmanna hjúkrunarheimila að umræðan á heilbrigðisþingi og ekki síst í kjölfar þess skyldi beinast í þá átt að hjúkrunarheimilin væru geymslurými. Það er óvirðing við heimilisfólk heimilanna og óvirðing við frábært starfsfólk hjúkrunarheimilanna.

Höldum okkur á veginum í umræðunni, annað veldur mögulega óþarfa slysum, leiðindum og miskilningi sem skapað getað sárindi, óverðskulduð og þarflaus með öllu.

Höfundur er framkvæmdastjóri Brákarhlíðar og formaður stjórnar Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.

 

 

Lesa meira...

Lionsklúbburinn Æsa færir íbúum á Hrafnistu Hlévangi veglega gjöf

 

Íbúum á Hrafnistu Hlévangi hefur borist höfðingleg gjöf frá Lionsklúbbnum Æsu í Njarðvík en það er Sara Stedy standlyfta sem við köllum jafnan „skutla“. Við þökkum Lionsklúbbnum Æsu innilega fyrir þessa frábæru gjöf og hlýhuginn sem þær sýna íbúum okkar.

Meðfylgjandi mynd var tekin þegar Þuríður I. Elísdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Reykjanesbæ (lengst til hægri) tók á móti gjöfinni fyrir hönd íbúa á Hrafnistu Hlévangi.

 

Lesa meira...

Katrín Heiða íþróttafræðingur á Hrafnistu Ísafold hyggst ganga 150 ferðir upp á Esjuna á árinu

 

Katrín Heiða Jónsdóttir, íþróttafræðingur á Hrafnistu Ísafold, hefur sett sér það markmið að ganga 150 ferðir upp á Esjuna á árinu. Hundruðustu ferðina á þessu ári hyggst hún ganga í lok vikunnar.

Morgunblaðið tók skemmtilegt viðtal við Katrínu sem birtist á baksíðu blaðsins í dag, þriðjudaginn 17. ágúst: Hyggst ganga 150 ferðir upp á Esjuna á árinu

 

Lesa meira...

Nýr aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á Sjávar- og Ægishrauni Hrafnistu Hraunvangi

 

Sólveig Hlín Sigurðardóttir hefur verið ráðin aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á Sjávar- og Ægishrauni frá 1. september 2021.

Sólveig lauk B.Sc námi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2020 og hefur starfað síðan sem hjúkrunarfræðingur á Sjávar- og Ægishrauni, ásamt því að starfa þar sem hjúkrunarnemi á meðan hún var í námi.

Sólveig er einnig með B.Sc próf í líffræði og diplómanám í kennslufræðum til kennsluréttinda.

 

Lesa meira...

Síða 24 af 175

Til baka takki