Kæru íbúar og aðstandendur.
Eins og þið vitið er mikil aukning á fjölda Covid-smita í samfélaginu. Vegna þess eru mjög margir að lenda í sóttkví, þar á meðal fjöldi starfsmanna sem starfa á Hrafnistuheimilunum. Miklir erfiðleikar geta skapast tengt því að manna vaktir og því hafa hjúkrunarheimilin fengið heimild hjá sóttvarnarsviði Embættis landlæknis til að sækja um svokallaða vinnusóttkví B fyrir ákveðinn hóp starfsmanna, þótt þeir séu í sóttkví í samfélaginu.
Ströng skilyrði eru fyrir því að starfsmaður fái að starfa í vinnusóttkví B og fer Hrafnista eftir þeim reglum og leiðbeiningum sem sóttvarnarsvið Embættis landlæknis setur.
Neyðarstjórn Hrafnistu vill því upplýsa um, að til þess getur komið að starfsmaður á þinni deild komi á vakt í vinnusóttkví B.
Kær kveðja,
Neyðarstjórn Hrafnistu