Top header icons

Fyrir starfsfólk

 

Örugg skjalamótttaka

Örugg skjalamótttaka

Fyrir starfsfólk

Hrafnista á Facebook

Staðfest kórónuveirusmit á Hrafnistu Sléttuvegi

 

Í dag, miðvikudag 7. október kom í ljós að starfsmaður Hrafnistu Sléttuvegi hafði greinst smitaður af kórónaveirunni. Umræddur starfsmaður var síðast í starfi mánudaginn 5.október. Starfsmaðurinn er einkennalaus en var settur í sóttkví af smitrakningarteymi sóttvarnarlæknis um leið og niðurstaða barst í dag. Strax í kjölfarið var þeirri deild sem viðkomandi starfar á lokað og sett í sóttkví.

Engin einkenni hafa greinst meðal íbúa deildarinnar né meðal annarra starfsmanna Hrafnistu á deildinni. Sóttkvíin mun vara meðan smitrakningarteymi sóttvarnarlæknis vinnur að málinu með neyðarstjórn Hrafnistu og stjórnendum deildarinnar. Verið er að greina hvaða starfsfólk þarf að vera  í sóttkví og hversu lengi sóttkvíin mun vara.

Öllum aðstandendum íbúa á deildinni hefur verið gert viðvart og boðið að hafa samband við umboðsmenn íbúa og aðstandenda Hrafnistu varðandi frekari upplýsingar. Aðstandendum verður frá og með deginum í dag sendur upplýsingapóstur daglega um stöðu mála.

 

Fyrir hönd Hrafnistu,

Neyðarstjórn Hrafnistuheimilanna.

 

 

 

 

Til baka takki

Þessi vefsíða notar kökur (cookies). Með því að halda áfram að nota vefinn, samþykkir þú þessa virkni vefsins.
Samþykkja kökur