Top header icons

Fyrir starfsfólk

 

Örugg skjalamótttaka

Örugg skjalamótttaka

Fyrir starfsfólk

Hrafnista á Facebook

Þriðja kórónuveirusmitið staðfest á Hrafnistu Ísafold

 

Í dag, miðvikudag 7.október, var aftur staðfest COVID-19 smit hjá íbúa á Hrafnistu Ísafold í Garðabæ. Er það þriðja smitið á Hrafnistu Ísafold, nánar tiltekið á Ásbyrgi. Búið er að tryggja öryggi annarra íbúa eins og hægt er og að upplýsa aðstandendur þess smitaða. Í samræmi við verkferla Hrafnistu hefur nú þegar verið ræst ákveðið viðbúnaðarstig þegar staðfest er um smit hjá íbúum eða starfsfólki þar sem unnið er eftir verklagi neyðarstjórnar Hrafnistu sem er á vakt allan sólarhringinn í tilfellum sem þessum til að tryggja sem best gæði og öryggi íbúa og starfsmanna. Ísafold er áfram lokuð og eru allir íbúar heimilisins í sóttkví á meðan unnið er að nánari greiningu. Hrafnista vinnur nú með rakningarteymi Almannavarna að því að stöðva frekari smitútbreiðslu.

 

Virðingarfyllst,

Neyðarstjórn Hrafnistu

 

 

Til baka takki

Þessi vefsíða notar kökur (cookies). Með því að halda áfram að nota vefinn, samþykkir þú þessa virkni vefsins.
Samþykkja kökur