Verslun
Verslun er staðsett í þjónustumiðstöðinni Sléttunni, verslunin er opin alla virka daga frá 8:45 - 16:00 og um helgar frá 12:30 - 16:30.
Hárgreiðslustofa
Hárgreiðslustofa er á 1. hæð þjónustumiðstöðvarinnar. Þar er boðið upp á klippingu, litun, hárgreiðslu og permanent.
Opið er alla virka daga frá kl 09:00 - 17:00. Tímapantanir eru í síma 585-3219.
Fótaaðgerðastofa
Fótaaðgerðastofa er á 1. hæð þjónustumiðstöðvarinnar. Þar starfa löggildir fótaaðgerðafræðingar með það að markmiði að veita góða þjónustu og að mæta þörfum hvers einstaklings eins og best verður á kosið. Það getur verið einstaklingsbundið hversu langur tími líður á milli meðferða en það fer eftir ástandi og heilbrigði fóta. Fótaaðgerðameðferðir eru að jafnaði veittar á 5-10 vikna fresti.
Opið er alla virka daga á milli 9:00 - 17:00. Tímapantanir eru í síma 585-3218/899-9607.
Naustið
Matar- og kaffiþjónusta er í Naustinu sem staðsett er á jarðhæð þjónustumiðstöðvarinnar. Opið er til kl. 17:00 alla daga vikunnar.
Veislu- og viðburðasalir eru til leigu í Naustinu. Nánari upplýsingar er hægt að fá í gegnum netfangið sigrun.kjaernested[hja]hrafnista.is