Haustfagnaður fór fram á Hrafnistu Garðabæ – Ísafold fimmtudaginn 2. nóvember sl. Um veislustjórn sáu Sigga Beinteins og Jógvan Hansen. Stemmingin var gríðarlega góð og var það samdóma álit viðstaddra að virkilega vel hefði tekist til, en þetta er í fyrsta skipti sem slíkur kvöldfagnaður er haldinn á Ísafold.