Anna Ruth Antonsdóttir, sjúkraliði á Bylgjuhrauni Hrafnistu Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í 25 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri, Anna Ruth og Árdís Hulda Eiríksdóttir, forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði.