Það var fjölmenni við messu á Hrafnistu í Reykjavík á skírdag. Heimilisfólk og fjölskyldur þeirra tóku þátt í messu, söng og altarisgöngu. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikaði og Inga Dóra Stefánsdóttir söng einsöng. Félagar úr Kammerkór Áskirkju sungu og organisti var Magnús Ragnarsson.