Heimilisfólk á Hrafnistu í Hafnarfirði, fjölskyldur þeirra og íbúar í nærliggjandi húsum fylltu Menningarsalinn í hátíðarguðsþjónustu á páskadag. Hátíðarkvartett söng og forsöngvari var Þóra Björnsdóttir. Organisti var Kristín Waage. Sr. Svanhildur Blöndal prédikaði og þjónaði fyrir altari.