Sumargrill Hrafnistu Kópavogi var haldið þriðjudaginn 9 ágúst sl. Veðurspá var góð fyrir daginn en breyttist með stuttum fyrirvara. Íbúar hjúkrunarheimilis, gestir í dagdvöl og íbúar Boðaþingi 22-24 komu því kappklæddir í dúnúlpum og með húfur. Við létum veðrið ekki hafa áhrif á stemninguna og skemmtum okkur konunglega og nutum matarins sem kokkarnir á Hrafnistu buðu uppá. Svanur Bragason spilaði á harmonikku og stjórnaði fjöldasöng ásamt Bjarney forstöðumanni.