Lena Sædís Kristinsdóttir, starfsmaður í sjúkraþjálfun Hrafnistu í Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár.
Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Bryndís F. Guðmundsdóttir deildarstjóri sjúkraþjálfunar, Lena og Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu.