Ásta María Sigurðardóttir, matartæknir í eldhúsinu á Hrafnistu Laugarási, hefur starfað á Hrafnistu í hvorki meira né minna en 30 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Ásta María fékk venju samkvæmt afhenta starfsafmælisgjöf frá Hrafnistu af þessu tilefni og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.
Á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Haukur Magnússon yfirmaður eldhúsa á Hrafnistu, Ásta María og Oddgeir Reynisson framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Hrafnistu.