Guðrún Júlíusdóttir, starfsmaður í sjúkraþjálfun á Hrafnistu Hraunvangi, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Guðrún fékk venju samkvæmt afhenta starfsafmælisgjöf frá Hrafnistu af þessu tilefni og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.
Á myndinni eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Hraunvangi, Guðrún og Íris Huld Hákonardóttir deildarstjóri sjúkraþjálfunar.