Brynja Þórdís Þorbergsdóttir, sjúkraliði á Ölduhrauni Hrafnistu Hraunvangi, hefur starfað á Hrafnistu í 30 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Brynja fékk venju samkvæmt afhenta starfsafmælisgjöf frá Hrafnistu af þessu tilefni og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri. Brynja er jafnframt að láta af störfum hjá okkur á Hrafnistu ásamt Ágústu Hinriksdóttur sem einnig hefur starfað á Hrafnistu, í yfir 30 ár og voru þær stöllur kvaddar með blómum með kæru þakklæti fyrir góð störf í þágu aldraðra í gegnum tíðina.
Á myndinni eru frá vinstri: María Fjóla Harðardóttir forstjóri Hrafnistu, Hrönn Önundardóttir hjúkrunardeildarstjóri á Ölduhrauni, Ágústa Hinriksdóttir, Brynja Þórdís Þorbergsdóttir og Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu Hraunvangi.