Hinir einu sönnu Fjallabræður heimsóttu íbúa á Hrafnistu Hraunvangi sl. þriðjudagskvöld og sungu sig inn í hjörtu allra viðstadda. Íbúar og aðrir gestir troðfylltu Menningarsalinn en um 170 manns mættu á viðburðinn og stemningin var mikil. Við þökkum þeim Fjallabræðrum kærlega fyrir komuna og sönginn, þetta var yndisleg kvöldstund.