Top header icons

Fyrir starfsfólk

 

Örugg skjalamótttaka

Örugg skjalamótttaka

Fyrir starfsfólk

Hrafnista á Facebook

Herða þarf á heimsóknarreglum Hrafnistuheimilanna frá og með 29. desember 2021

 

Kæru íbúar og aðstandendur.

Fréttir síðastliðinna daga sýna að Covid-faraldurinn er í mjög miklum vexti og ekkert lát er á aukningu í smitum.

Neyðarstjórn Hrafnistu fundaði um stöðu mála í dag. Því miður er ljóst að nú þarf að grípa til harðari takmarkana tengt heimsóknum til íbúa á Hrafnistuheimilin. Mikilvægt er að hægt sé að halda uppi þjónustu við íbúana og draga eins og hægt er úr líkum á að smit berist inn á heimilin.

Reglur um heimsóknir á Hrafnistu sem taka gildi miðvikudaginn 29. desember 2021

  • Tveir gestir hafa leyfi til að heimsækja íbúa hvern dag.
  • Aðstandendur og gestir á aldrinum 0-30 ára– Eru beðnir um að koma ekki í heimsókn. Mjög mörg smit eru að greinast í þessum aldurshópi og margir hverjir í hópnum eru ekki bólusettir og því mun meiri líkur á að þeir smiti aðra.
  • Grímuskylda – ALLIR gestir þurfa að bera andlitsgrímu við komu á heimilin. EKKI er heimilt að taka grímuna niður inn á herbergi íbúa. Ekki er heimilt að vera með margnota grímur.
  • Virða þarf 2ja metra regluna, en hún er aftur komin í gildi. Forðist snertingu við íbúa eins og hægt er.
  • Ekki er heimilt að nýta setustofur og borðstofur eininga/deilda til heimsókna né önnur alrými á heimilunum s.s. borðsali.
  • Íbúum er áfram heimilt að fara út í garð og í gönguferðir með sínum nánustu og einnig er heimilt að fara með íbúa út af heimilinu í bílferðir eða heimsóknir.
  • Mikilvægt er að hafa í hugaað sem fæstir séu í þeim boðum sem íbúar heimilanna sækja utan þeirra (lög segja að hámarki 20 einstaklingar (börn eru þar meðtalin) sem gildir fyrir frískt fólk). Neyðarstjórnin biðlar til íbúa, aðstandenda og annarra gesta að fara ekki í stærri mannfagnaði eða aðrar samkomur með íbúa.
  • Neyðarstjórnin hvetur aðstandendurtil að nýta hraðprófáður en farið er með íbúa í mannfagnaði eða aðrar samkomur og eins áður en þeir koma í heimsóknir á heimilin.
  • Fullbólusettir aðstandendur sem dvalið hafa erlendis – Þeim er heimilt komið í heimsókn eftir að hafa farið í skimun á landamærum og niðurstaða úr skimun er neikvæð ásamt því að þeir séu með öllu einkennalausir. Mikilvægt er samt að hafa samráð við stjórnendur deilda.
  • Óbólusettir aðstandendur sem eru að koma erlendis frá mega ekki koma í heimsókn inn á heimilin fyrr en 14 dagar eru liðnir frá heimkomu (undanþágu er hægt að fá í samráði við stjórnendur deildar ef um skyndileg veikindi/lífslokameðferð er að ræða hjá íbúa). 
  • Undanþága frá reglum um heimsóknir hverju sinn, er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og þarf leyfi frá vaktstjóra deildar.

Hátíðarmatur um áramót

Þar sem ekki er heimilt fyrir aðstandendur að nýta sameiginleg rými á deildum/heimilum þá er því miður ekki hægt að bjóða aðstandendum að borða með íbúum í borðsölum nema í sérstökum undantekningatilfellum.

Mikilvægt er að hafa í huga að njóta samveru, hátíðleika og væntumþykju þótt hátíðarkvöldverður sé ekki endilega snæddur saman. Samveran sjálf er svo mikilvæg og þið getið skapað ykkar eigin hátíðarstund með ættingja ykkar inn á herbergi íbúa.

Alls ekki koma í heimsókn ef:
a. Þú ert í sóttkví eða smitgát
b. Þú ert í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku.
c. Þú hefur verið í einangrun og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
d. Þú ert með COVID-19 lík einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang, uppköst o.fl.).
e. Þú ert með einhver önnur almenn einkenni um veikindi.

Munið að sýna ýtrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum. Við þurfum öll að hafa í huga persónulegar sýkingavarnir s.s. handþvott og handsprittun.  

 

Kær jólakveðja,

Neyðarstjórn Hrafnistu

 

 

 

Til baka takki

Þessi vefsíða notar kökur (cookies). Með því að halda áfram að nota vefinn, samþykkir þú þessa virkni vefsins.
Samþykkja kökur