Nilanka I. Dewage, starfsmaður í býtibúri á Ölduhrauni Hrafnistu Hraunvagi, hefur starfað á Hrafnistu í 20 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Nilanka fékk venju samkvæmt afhenta starfsafmælisgjöf frá Hrafnistu af þessu tilefni og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.
Á myndinni eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu Hraunvangi, Nilanka, Hrönn Önundardóttir hjúkrunardeildarstjóri á Ölduhrauni og María Fjóla Harðardóttir forstjóri Hrafnistu.