Guðbjörg Hassing, starfsmaður í iðjuþjálfun og félagsstarfi Hrafnistu í Reykjavík, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Reykjavík, Sigurbjörg Hannesdóttir deildarstjóri iðjuþjálfunar, Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu og Guðbjörg Hassing.