Svanhvít Guðmundsdóttir, sjúkraliði á Hrafnistu Garðabæ - Ísafold, hefur starfað á Hrafnistu í 15 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri, Svanhvít, Hrönn Ljótsdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Garðabæ og Sigrún Skúladóttir hjúkrunardeildarstjóri.