Á Sjómannadaginn afhenti Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, Sigrúnu Stefánsdóttur forstöðumanni Hrafnistu í Reykjavík bókina: Hér heilsast skipin. Saga Faxaflóahafna 1. og 2. bindi eftir Guðjón Friðriksson. Í bókinni er sögð saga þeirra hafna sem tilheyra Faxaflóahöfnum, eins og Reykjavíkurhöfn, Akraneshöfn, Borgarneshöfn og Grundartangahöfn. Í bókinni er fjöldi ljósmynda og einnig er sagt frá höfninni í Hvalfirði sem var herskipahöfn á stríðsárunum.