Heimir Einarsson, matreiðslumaður á Hrafnistu í Reykjavík, hefur starfað á Hrafnistu í 15 ár. Um leið og við óskum honum til hamingju með áfangann er honum þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hann hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Ólafur Haukur Magnússon yfirmatreiðslumaður, Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu, Heimir Einarsson, Magnús Margeirsson yfirmaður eldhúsa Hrafnistuheimilanna og Harpa Gunnarsdóttir fjármálastjóri Hrafnistu.