Dagbjört Michaelsdóttir, sjúkraliði á Báruhrauni Hrafnistu í Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í 25 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Sólborg Tryggvadóttir aðstoðardeildarstjóri á Báruhrauni, Anný Lára deildarstjóri, Dagbjört og Pétur Magnússon forstjóri.