Hrafnistu í Hafnarfirði barst nýlega höfðingleg gjöf. Um er að ræða 5 flutningshjólastóla sem gefnir eru af aðilum sem eiga aðstandendur á heimilinu. Stólarnir verða til taks á hverri hæð og verða meðal annars nýttir til að auðvelda íbúum að sækja sér þá þjónustu og viðburði sem í boði eru á heimilinu.
Stólarnir eru XS Aluminium krossramma hjólastólar, bólstraðir með stillanlegum bakdúk, uppfellanlegum örmum sem hægt er að dýptarstilla, hraðlosun á hjólum, veltivörn, 5 cm sessu, mjaðmabelti og tvískiptum fótahvílum þar sem hægt er að stilla fótplötu og eins að taka hana af.
Hrafnista þakkar þessum aðilum fyrir hlýhug og frábæra gjöf sem á eftir að nýtast íbúum heimilisins vel.