Ásdís Elín Guðmundsdóttir, sjúkraliði með sérnám á Ölduhrauni Hrafnistu Hraunvangi, hefur starfað á Hrafnistu í 25 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Ásdís Elín fékk venju samkvæmt afhenta starfsafmælisgjöf frá Hrafnistu af þessu tilefni og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.
Á myndinni eru frá vinstri: Ásdís Elín, Hrönn Önundardóttir hjúkrunardeildarstjóri á Ölduhrauni, Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Hraunvangi og Oddgeir Reynisson framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Hrafnistu.