Top header icons

Fyrir starfsfólk

 

Örugg skjalamótttaka

Örugg skjalamótttaka

Fyrir starfsfólk

Hrafnista á Facebook

Skilaboð til íbúa og aðstandenda Hrafnistuheimilanna 23. desember 2021

Kæru íbúar og aðstandendur.

Því miður er ljóst að Covid - faraldurinn er í örum vexti þessa dagana. Neyðarstjórn Hrafnistu fundaði um stöðu mála í gær. Á fundinum var tekin sú ákvörðun að breyta ekki þeim heimsóknarreglum sem sendar voru út fyrir stuttu tengt jólum og áramótum.

Það er samt mikilvægt að hafa í huga að bylgja faraldursins núna er borin uppi af yngri aldurshópum samfélagsins þ.e. börnum á yngri stigum grunnskóla  (6 - 12 ára) og ungu fólki (18 – 30 ára). Neyðarstjórnin biðlar því til ykkar allra að hafa þetta í huga og:

  • Takmarka heimsóknir þessa aldurshóps eins og hægt er.
  • Að sem fæstir séu í þeim boðum sem íbúar heimilanna sækja utan þeirra (lög segja að hámarki 20 einstaklingar (börn eru þar meðtalin) sem gildir fyrir frískt fólk).

 

Kær jólakveðja,

Neyðarstjórn Hrafnistu

 

Til nánari glöggvunar koma hér fyrir neðan þær reglur sem eru í gildi og hafa áður verið sendar út:

Grímuskylda – ALLIR gestir þurfa að bera andlitsgrímu við komu á heimilin. Heimilt er að taka grímuna niður inn á herbergi íbúa. Ekki er heimilt að vera með margnota grímur.

Ekki er heimilt að nýta setustofur og borðstofur eininga/deilda til heimsókna né önnur alrými á heimilunum s.s. borðsali.

Íbúum er áfram heimilt að fara út í garð og í gönguferðir með sínum nánustu og einnig er heimilt að fara með íbúa út af heimilinu í bílferðir eða heimsóknir. Neyðarstjórnin biðlar þó til íbúa, aðstandenda og annarra gesta að fara ekki í stærri mannfagnaði eða aðrar samkomur með íbúa.

Fullbólusettir aðstandendur sem dvalið hafa erlendis – Þeim er heimilt komið í heimsókn eftir að hafa farið í skimun á landamærum og niðurstaða úr skimun er neikvæð ásamt því að þeir séu með öllu einkennalausir. Mikilvægt er samt að hafa samráð við stjórnendur deilda.

Óbólusettir aðstandendur sem eru að koma erlendis frá mega ekki koma í heimsókn inn á heimilin fyrr en 14 dagar eru liðnir frá heimkomu (undanþágu er hægt að fá í samráði við stjórnendur deildar ef um skyndileg veikindi/lífslokameðferð er að ræða hjá íbúa). 

Undanþága frá reglum um heimsóknir hverju sinn, er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og þarf leyfi frá vaktstjóra deildar.

 

Hátíðarmatur um jól og áramót

 

Þar sem ekki er heimilt fyrir aðstandendur að nýta sameiginleg rými á deildum/heimilum þá er því miður ekki hægt að bjóða aðstandendum að borða með íbúum í borðsölum nema í sérstökum undantekningatilfellum.

Ef aðstæður leyfa er sjálfsagt að íbúi fari út af heimilinu og borði með ástvinum sínum um hátíðarnar.

Mikilvægt er að hafa í huga að njóta samveru, hátíðleika og væntumþykju þótt hátíðarkvöldverður á aðfangadagskvöld sé ekki endilega snæddur saman. Samveran sjálf er svo mikilvæg og þið getið skapað ykkar eigin hátíðar- og jólastund með ættingja ykkar inn á herbergi íbúa og opnað jólapakka, hlusta á jólatónlist og notið hátíðleikans.

Alls ekki koma í heimsókn ef:

a. Þú ert í sóttkví eða smitgát.

b. Þú ert í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku.

c. Þú hefur verið í einangrun og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.

d. Þú ert með COVID-19 lík einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang, uppköst o.fl.).

e. Þú ert með einhver önnur almenn einkenni um veikindi.

 

Munið að sýna ýtrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum. Við þurfum öll að hafa í huga persónulegar sýkingavarnir s.s. handþvott og handsprittun.  

 

 

Til baka takki

Þessi vefsíða notar kökur (cookies). Með því að halda áfram að nota vefinn, samþykkir þú þessa virkni vefsins.
Samþykkja kökur