Þær Helena Björk Jónasdóttir íþróttafræðingur og Lena Sædís Kristinsdóttir starfsmaður í sjúkraþjálfun hafa báðar starfað á Hrafnistu Hraunvangi í 20 ár. Um leið og við óskum þeim til hamingju með áfangann er þeim þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem þær hafa sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu Hraunvangi, Íris Huld Hákonardóttir deildarstjóri sjúkraþjálfunar, Helena Björk og Lena Sædís.