Þær Auður Adólfsdóttir og Ína Skúladóttir, sjúkraliðar á Bylguhrauni Hrafnistu Hraunvangi Hafnarfirði, hafa hvor um sig starfað á Hrafnistu í hvorki meira en minna en 35 ár! Um leið og við óskum þeim til hamingju með áfangann er þeim þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem þær hafa sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu Hraunvangi, Eyrún Pétursdóttir hjúkrunardeildarstjóri á Bylgjuhrauni, Auður og Ína ásamt Maríu Fjólu Harðardóttur forstjóra Hrafnistu.