Dagdvalargestur í Röst, á Hrafnistu Sléttuvegi, hefur verið greindur með COVID-19 smit. Af þeirri ástæðu þurfa allir gestir dagdvalar sem umgengust viðkomandi gest að fara í sóttkví ásamt starfsfólki deildarinnar.
Unnið er að því að upplýsa alla þá aðila sem að málinu koma.
Dagdvölin verður lokuð til mánudagsins 12. október 2020.