Guðríður Ósk Axelsdóttir, starfsmaður í aðhlynningu á Báruhrauni Hrafnistu Hraunvangi, hefur starfað á Hrafnistu í 35 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu, Guðríður, Sólborg Tryggvadóttir aðstoðardeildarstjóri, Guðríður og Hrefna Ásmundsdóttir deildarstjóri á Báruhrauni.