Ólöf Ásgeirsdóttir hefur tekið við stöðu aðstoðardeildarstjóra sjúkraþjálfunar Hrafnistu Hraunvangi, en hún mun sinna starfinu á meðan Elín aðstoðardeildarstjóri er í fæðingarorlofi.
Ólöf lauk B.Sc. prófi í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands vorið 1993 og diplómagráðu í Lýðheilsuvísindum frá sama skóla haustið 2016. Hún hefur starfað sem sjúkraþjálfari hjá Hrafnistu frá 2017.