Soffía Egilsdóttir, félagsráðgjafi og umboðsmaður íbúa og aðstandenda, og Þóra Geirsdóttir hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri á heilbrigðissviði, hafa starfað á Hrafnistu í 20 ár. Um leið og við óskum þeim til hamingju með áfangann er þeim þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem þær hafa sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: María Fjóla Harðardóttir framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs Hrafnistu, Þóra, Soffía og Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu.