Í tilefni af stofndegi Sjómannadagsráðs, eiganda Hrafnistuheimilanna þann 25. nóvember, hefur verið ákveðið að koma á fót árlegum Kótilettudegi Hrafnistu sem næst þeim degi.
Fyrsti kótilettudagurinn verður haldinn fimmtudaginn 29. nóvember nk. en þá verður blásið til kótilettuveislu í hádeginu á öllum Hrafnistuheimilunum sex.
Sérstök dagskrá verður haldin á Hrafnistu í Reykjavík að þessu sinni en kl. 12:15 mun fara fram keppni í kótilettuáti sem kraftajötuninn Hjalti Úrsus Árnason mun stýra og kl. 14:00 ætlar Valgerður Guðnadóttir söngkona og Helgi Hannesson píanóleikari að flytja nokkur vel valin lög.
Sjá auglýsingu Hrafnistu í Reykjavík hér
Auglýsingar varðandi fyrirkomulag kótilettudagsins á hinum Hrafnistuheimilunum hanga uppi á hverju heimili fyrir sig.