Þann 12. nóvember sl. gerði eldhús Hrafnistu í Reykjanesbæ samning við sameinað sveitarfélag Sandgerðis og Garðs um matarsölu til eldri borgara í sveitarfélaginu alla virka daga. Er þetta viðbót að meðaltali upp á 30 matarskammta. Sveitarfélagið sér sjálft um að skammta á bakka og um alla útkeyrslu. Við í Reykjanesbæ fögnum þessari samvinnu við nágrannasveitarfélagið.