Starfsfólk iðjuþjálfunar á Hrafnistu óskar eftir tillögum að jólakorti Hrafnistu árið 2018.
Kortið er prentað í um 3000 eintökum og Hrafnista sendir jólakortið út á hverju ári til allra íbúa og annarra vellunnara heimilanna.
Skiladagur er 15. október 2018 og er áhugasömum bent á að hafa samband við starfsmenn iðjuþjálfunar til þess að fá nánari upplýsingar.
Sjá nánari auglýsingu með því að smella hér.