Á hverju ári eru veittar viðurkenningar á Hrafnistu til þeirra starfsmanna sem hafa útskrifast úr námi á árinu. Margir starfsmenn Hrafnistu stunda ýmiskonar nám með vinnu og í morgun veittu María Fjóla, framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs og Árdís forstöðumaður Kristínu Thomsen, iðjuþjálfa á Hrafnistu í Hafnarfirði, viðurkenningu en Kristín lauk diplómanámi í öldrunarþjónustu sl. vor. Við óskum henni og öllum þeim starfsmönnum sem lokið hafa námi á þessu ári innilega til hamingju með áfangann.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: María Fjóla framkvæmdarstjóri heilbrigðissviðs, Harpa Björgvinsdóttir deildarstjóri iðjuþjálfunar, Kristín Thomsen og Árdís Hulda forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði.