Sjómannadagsráð hefur selt fasteignir sínar við Stofusund 1 í Hraunborgum í Grímsnesi en til þeirra heyra þjónustumiðstöð, sundlaug og tjaldstæði, auk orlofshúsa félagsins við Húsasund. Landareignin sem slík verður eftir sem áður í eigu Sjómannadagsráðs.
Nýir eigendur og rekstraraðilar eru þau Drífa Björk Linnet og Halli Logi í Búðasundi (Vacation in Iceland ehf) sem tóku við rekstri eignanna þann 9. maí. Nýir eigendur gera ráð fyrir óbreyttum rekstri ásamt einhverjum áherslubreytingum til að bæta þjónustuna enn frekar í þágu viðskiptavina á svæðinu.
Með sölu eignanna hyggst Sjómannadagsráð framvegis aðeins gegna hlutverki landareiganda og lóðarleigusala á frístundahúsasvæðinu í Hraunborgum.
Sjómannadagsráð óskar nýjum eigendum velfarnaðar og hvetur alla hagsmunaaðila til að kynna sér vel þá þjónustu sem boðin verður af nýjum eigendum.