Arndís Birgisdóttir hefur starfað á Hrafnistu í 35 ár, nú síðustu ár á þjónustuborðinu á Hrafnistu í Hafnarfirði. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði, Arndís og Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistuheimilianna.