Ólafur Haukur Magnússon, matreiðslumaður í eldhúsi Hrafnistu í Reykjavík, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár. Um leið og við óskum honum til hamingju með áfangann er honum þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hann hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu, Harpa Gunnarsdóttir fjármálastjóri, Ólafur Haukur og Magnús Margeirsson yfirmaður eldhúsa Hrafnistuheimilanna.