Þriðjudaginn 6. mars sl. komu krakkarnir á leikskólanum Stekkjarási í heimsókn á Hrafnistu í Hafnarfirði og sungu í Menningasalnum fyrir íbúa og starfsfólk. Það myndaðist gríðarlega góð stemmning sem endaði á því að Böðvar tók upp harmonikkuna og spilaði undir söng þar sem allir sungu saman. Við þökkum þessum skemmtilegu krökkum kærlega fyrir komuna.
Börnin sungu:
https://www.facebook.com/handverksheimili/videos/1987007654896444/
Allir sungu saman:
https://www.facebook.com/handverksheimili/videos/1987007801563096/