Guðlaug Oddný Sigmundsdóttir, starfsmaður í aðhlynningu á Sjávar- og Ægishrauni Hrafnistu Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í 20 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði, Guðlaug, Hjördís Ósk Hjartardóttir deildarstjóri á Sjávar- og Ægishrauni og Pétur Magnússon forstjóri.