Lucia Lund, mannauðsstjóri Hrafnistuheimilanna, hefur starfað á Hrafnistu í 30 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri, Lucia, Hálfdan Henrysson stjórnarformaður Sjómannadagsráðs og Harpa Gunnarsdóttir fjármálastjóri Hrafnistuheimilanna.