Frá og með 1. febrúar næstkomandi verða þær breytingar á skipulagi rekstrarsviðs Hrafnistu að ný starfseining: Fræðsla og ráðgjöf, tekur til starfa.
Fræðslumál færast þá frá mannauðsdeildinni í þessa nýju starfseiningu, sem auk fræðslunnar mun sinna ráðgjöf til starfsmanna, stjórnenda, heimilismanna og aðstandenda.
Með því móti verður settur aukinn kraftur í fræðslumálin og þróun þeirra innan Hrafnistuheimilanna. Einnig verður aukin áhersla á ráðgjöf varðandi starfsþróunarmál og önnur málefni sem snúa að eflingu starfsmannahópsins, fræðslu til aðstandenda og heimilismanna.
Starfsmenn Fræðslu og ráðgjafar verða Lucia Lund og Soffía Egilsdóttir:
Lucia Lund: Mun sjá um fræðslumál í samstarfi við Soffíu, sjá um ráðgjöf varðandi starfsþróunarmál og önnur verkefni sem snúa að eflingu starfsmannahópsins. Þess má geta að Lucia lauk á síðasta ári námi í Markþjálfun.
Soffía Egilsdóttir: Mun sjá um fræðslumál í samstarfi við Luciu og sinna ráðgjöf varðandi samskipti við heimilisfólk og aðstandendur þeirra. Soffía sinnir stuðningi við forstöðumenn og stjórnendur í einstökum málum sem félagsráðgjafi.
Sameiginlega munu þær Lucia og Soffía vinna að stefnumótun og uppbyggingu fræðslustarfsins og ráðgjafar, ásamt því að taka þátt í gæðastarfi, móta verklagsreglur og vinna með þverfaglegum teymum innan Hrafnistu.
Um leið og við þökkum Luciu fyrir sín góðu störf sem mannauðsstjóri Hrafnistu , óskum við henni og Soffíu góðs gengis við að efla enn frekar fræðslu og ráðgjöf innan Hrafnistuheimilanna.