Top header icons

Fyrir starfsfólk

 

Örugg skjalamótttaka

Örugg skjalamótttaka

Fyrir starfsfólk

Hrafnista á Facebook

Föstudagsmolar 13. desember 2019 - Gestahöfundur er Þuríður I. Elísdóttir, forstöðumaður Hrafnistuheimilanna í Reykjanesbæ

Aðventuhugleiðingar.

Nú er aðventan gengin í garð, jólaljós og kransar komið í flesta glugga og jólasöngvar óma á öldum hljóðvakanna. Eftirvætning og gleði skín í augum og andlitum barnanna sem bíða eftir jólunum. Hinir fullorðnu eru á fullu við þrif, bakstur og skreytingar svo helgihaldið megi verða sem hátíðlegast.

Þó desember sé annasamur mánuður, þar sem allir eru að reyna að leggja sig fram við að gera umhverfið sem notalegast fyrir sig og sína, skulum við jafnframt hafa hugfast að margir eiga líka um sárt að binda í jólamánuðinum. Sorgin knýr víða dyra. Þeir sem missa ástvin eða ganga í gegnum sorgarferli upplifa ekki þá sömu gleði og tilhlökkun á aðventunni sem flestir fá notið. Fyrir þá er tíminn erfiður og vanlíðan í sumum tilfellum ein sterkasta tilfinningin þótt flestir reyni að bera sig vel og ekki á borð fyrir aðra. Gagnvart einstaklingum í sorg skipta samskipti, ræktarsemi og tillitsemi afar miklu máli, einnig hvernig við orðum hlutina og komum fram hvert við annað í daglegum samskiptum, ekki síst gagnvart íbúum okkar á Hrafnistu og aðstandendum þeirra.

Um þessar mundir verður mér jafnframt hugsað til  þeirra sem minna hafa á milli handanna til að standa straum af öllum þeim kostnaði sem fylgir innkaupum fyrir jólin. Við þurfum að sýna hvert öðru nærgætni og vinarþel í verki á þessum tíma. Falleg orð, hlýtt faðmlag eða einlægt bros getur skipt öllu máli fyrir þá sem eiga um sárt að binda. Höfum einnig í huga að aðgát skal höfð í nærveru sálar og eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt. Þessi orð eiga alltaf við á öllum tíma ársins. Mikilvægast er að njóta samvistanna með hvert öðru, vera til staðar hér og nú, lifa og njóta hvort sem er í vinnu eða með fjölskyldu og vinum. Gleðilega hátíð.

 

Þuríður Ingibjörg Elísdóttir,

forstöðumaður Hrafnistuheimilanna í Reykjanesbæ. 

 

 

Til baka takki

Þessi vefsíða notar kökur (cookies). Með því að halda áfram að nota vefinn, samþykkir þú þessa virkni vefsins.
Samþykkja kökur