Á Hrafnistu í Laugarási eru hvíldarrými.
Með hvíldarinnlögn er átt við tímabundna dvöl sem getur staðið yfir frá nokkrum dögum allt að átta vikum á tólf mánaða tímabili allt eftir óskum og þörfum hvers og eins.
Markmiðið með hvíldarinnlögn er að gera fólki kleift að búa áfram á eigin heimili og liður í að viðhalda lífsgæðum einstaklings sem og stuðningur og ráðgjöf við aðstandendur. Á meðan á dvöl stendur nýtur hvíldargestur allrar almennrar þjónustu sem Hrafnista hefur upp á að bjóða ásamt því að taka þátt í félagsstarfi og þeim viðburðum sem í boði eru.
Heimilislæknar, starfsfólk heimahjúkrunar og forstöðumenn dagþjálfana sækja um hvíldarinnlagnir með því að fylla út umsóknareyðublað á vef Landlæknis.
Umsókn um hvíldarinnlögn
Upplýsingar um hvíldarinnlagnir á Hrafnistu Laugarási veitir:
Unnur Stefánsdóttir
Netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Upplýsingar fyrir hvíldarrými
Upplýsingar fyrir fagfólk