Dagdvöl Hraunvangur

Ísafold tók fyrst til starfa í apríl 2013 en þann 1. febrúar 2017 tók Hrafnista við rekstri Ísafoldar og er heimilið rekið af Sjómannadagsráði

Á Hrafnistu Ísafold eru hjúkrunarrými fyrir 60 íbúa þar sem veitt er sólarhrings hjúkrunar- og læknisþjónusta

Inntaka íbúa fer fram í gegnum Færni- og heilsumat Landlæknisembættisins

Önnur skammtímarými er dagdvöl en Hrafnista Ísafold er með leyfi fyrir 16 almennum rýmum og 4 sértækum rýmum, þ.e. fyrir einstaklinga með heilabilun. 

Allar nánar upplýsingar um Hrafnistu Ísafold má finna í Handbókin þín - íbúar og aðstandendur

Þeir sem óska eftir frekari upplýsingum um heimilið er bent á að hafa  samband við Írisi Dögg Árnadóttur í netfangið iris.arnadottir[hja]hrafnista.is 

Aðstaðan

Við hönnun og uppbyggingu á Ísafold var horft til þess nýjsta í hönnun hjúkrunarheimila á Íslandi. Að auki var leitað  í smiðju Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra. Öll herbergi eru einbýli. Hvert herbergi er um 35 fermetrar, sameiginlegt svefnherbergi og stofa auk baðherbergis og eldhúskróks, þar sem er innrétting með vaski en einnig er þar að finna sjúkrarúm, náttborð og fataskáp á hjólum, gardinukappa og rúllugluggatjöld. Einnig er á herbergjunum öryggiskallkerfi, tengingar fyrir síma, sjónvarp og tölvu. Heimilismenn útvega síðan sjálfir annan húsbúnað og gluggatjöld ef þeir óska eftir að gera heimili sitt ennþá heimilislegra.
 

  •  

     

     

     

    Hrafnista í Garðabæ Ísafold

     

     

     
     

    Dagdvöl - Hrafnista Ísafold Garðabæ

     
    Dagdvöl á Hrafnistu Ísafold er með leyfi fyrir 4 sértæk rými, þ.e. fyrir einstaklinga með heilabilun og 16 almenn rými. Markmið með dagdvöl er að styðja fólk til þess að geta búið sem lengst heima, viðhalda og/eða auka færni, rjúfa félagslega einangrun og létta undir með aðstandendum.

    Í dagdvöl eru m.a. samverustundir þar sem boðið er upp á upplestur, söng, klúbbastarf, göngutúra, leikfimisæfingar, handavinnu og ýmis konar félagsstarf, í dagdvöl er boðið upp á morgun-, hádegismat og miðdagskaffi. 
    Starfsfólk deildarinnar leggur mikla áherslu á að eiga gott samband við aðstandendur skjólstæðinga sinna.

    Deildarstjóri dagdvalar er Svanhvít Guðmundsdóttir, svanhvit.gudmundsdottir[hja]hrafnista.is Sími 535 2250.
     

    Umsókn um dagdvöl má nálgast hér.

     

     

    Lesa meira...

    Iðjuþjálfun og félagsstarf

    Á Hrafnistuheimilunum leitast iðjuþjálfar og starfsmenn iðjuþjálfunar eftir því að starfa einstaklingsmiðað og hafa þarfir hvers og eins að leiðarljósi, að viðkomandi hafi hlutverk og fái tækifæri til að njóta iðju sem hann hefur áhuga á hverju sinni. Þannig hefur þátttakan jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan einstaklingsins. Iðjuþjálfar og starfsmenn iðjuþjálfunar sinna bæði einstaklingum og hópum með það að leiðarljósi að bæta andlega líðan, félagslega- og líkamlega færni einstaklingsins. 

    Boðið er upp á þjálfun á færni til iðju á einstaklingsbundinn hátt, þannig að samspil sé á milli heimilismanns, iðjunnar og umhverfisins. Einstaklingsmeðferð sem og hópþjálfun er í boði á heimilinu á vegum iðjuþjálfunar en þar gefst einstaklingum tækifæri á að fást við ýmsa tómstundaiðju. Iðjuþjálfi sér einnig um að útvega og/eða  veita ráðgjöf varðandi hjálpartæki daglegs lífs. 
    Samvinna við hjúkrunarfólk sjúkra- og iðjuþjálfun er mikil og unnið er í teymisvinnu að málefnum einstaklinga.
     
    Deildarstjóri iðjuþjálfunar er Ester Gunnsteinsdóttir, ester.gunnsteinsdottir[hja]hrafnista.is 
     

     

     

         

     

     

     

     

     

    Sjúkraþjálfun

    Á Hrafnistu Garðabæ Ísafold er sjúkraþjálfunardeild í bjartri og fallegri aðstöðu á 1. hæð. Deildin er vel búin tækjum, leikfimisal og meðferðaklefum. 

    Markmið sjúkraþjálfunar er að auka lífsgæði íbúa, til dæmis með því  að minnka verki, auka hreyfanleika og viðhalda færni eins og hægt er. Hvetja til athafna sem viðkomandi hefur áhuga á og hefur gildi fyrir hann. 
     
    Sjúkraþjálfari sinnir einstaklingsmeðferð og býr til æfingaáætlanir  (þol, styrktar og jafnvægisþjálfun) fyrir einstaklinga. 
     
    Íbúum stendur til boða æfingameðferð eða önnur sérhæfðari meðferð, allt eftir þörfum hvers og eins. M.a. er um að ræða almenna þjálfun, boccia, jafnvægisþjálfun, ýmsa hóptíma og  stólaleikfimi. Yfir sumartímann stendur deildin einnig fyrir ýmsum atburðum, s.s gönguferðum og kvennahlaupi. Sjúkraþjálfarar ásamt iðjuþjálfurum sjá um að panta hjólastóla, gönguhjálpartæki og spelkur fyrir heimilismenn ef á þarf að halda. Sjúkraþjálfarar annast hluta af RAI-hjúkrunarþyngdarmati íbúa. Einnig sjá þeir um fræðslu (t.d. varðandi hjálpartæki og líkamsbeitingu) fyrir starfsfólk og skjólstæðinga.
     
    Ef íbúi óskar eftir notkun á rafknúnu hjálpartæki s.s. rafmagnsbíl þá þarf fyrst að fara fram mat á ökuhæfni og leyfi síðan veitt samkvæmt reglum Hrafnistu um slíkan búnað. Þrif og viðhald á rafskutlum er á ábyrgð heimilismanns og aðstandenda.
     
    Deildarstjóri sjúkraþjálfunar er Ester Gunnsteinsdóttir, ester.gunnsteinsdottir[hja]hrafnista.is Sími 535-2215
     


     

     

    Þjónusta

    Hárgreiðslustofa

    Hárgreiðslustofa er á 1. hæð þjónustumiðstöðvarinnar. Tímapantanir eru í síma 535-2280. 

    Fótaaðgerðastofa

    Fótaaðgerðastofa er á 1. hæð þjónustumiðstöðvarinnar. Tímapantanir eru í síma 535-2275.
     

     

     

    Forstöðumaður

    Sara Pálmadóttir er  forstöðumaður Hrafnistu Ísafold í Garðabæ, sara.palmadottir[hja]hrafnista.is 

    Hjúkrunardeildarstjóri er Rannveig Albína Norðdahl, rannveig.norddahl[hja]hrafnista.is 

    Læknaþjónusta

    Læknar eru á vakt á Hrafnistuheimilunum allan sólarhringinn. Almenn læknisþjónusta felur í sér eftirlit og móttöku á deildum ásamt því að sinna bakvakt allan sólarhringinn. Aðgengi að sérhæfðari læknisþjónustu er veitt innan eða utan heimilanna með tilvísun lækna. Hjúkrunarfræðingur á viðkomandi deild Hrafnistu annast milligöngu ef óskað er eftir að ná samband við lækni. Læknar Hrafnistu sinna öllum átta Hrafnistuheimilunum:

     Hrafnistu Laugarási, Reykjavík

     Hrafnistu Hraunvangi, Hafnarfirði

     Hrafnistu Boðaþingi, Kópavogi

     Hrafnistu Ísafold, Garðabæ

     Hrafnistu Skógarbæ, Reykjavík

     Hrafnistu Hlévangi, Reykjanesbæ

     Hrafnistu Nesvöllum, Reykjanesbæ

    Hrafnistu Sléttuvegi, Reykjavík

     
    Veitt er fagleg þjónusta sem tekur mið að þörfum íbúanna og hefur jákvæð áhrif á lífsgæði fólks. Markmið læknisþjónustunnar er að stuðla að sem bestri  líkamlegri og andlegri heilsu íbúa. Megin áhersla er lögð á að auka færni, sjálfstæði og lífsgæði einstaklingsins eftir leiðum læknisfræðinnar. Sú stefna og þau markmið eru í samræmi við markmið Hrafnistu um að vera leiðandi aðili í þjónustu og umönnun aldraðra.
     
    Læknisþjónusta Hrafnistuheimilanna á höfuðborgarsvæðinu er framkvæmd í samvinnu við Heilsuvernd.
     
    Læknisþjónusta Hrafnistuheimilanna í Reykjanesbæ er framkvæmd í samvinnu við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

    Hjúkrun

    Á Hrafnistu Ísafold starfa hjúkrunarfræðingar, læknar, sjúkraliðar, félagsliðar og starfsfólk við umönnun heimilismanna allan sólahringinn. Hjúkrun og umönnun er veitt samkvæmt einstaklingshæfðri hjúkrun, á þann hátt að hver heimilismaður hefur sinn hjúkrunarfræðing, sjúkraliða og/eða starfsmann í aðhlynningu sem hafa umsjón með umönnun hans. Markmið hjúkrunar er að veita hjúkrun og umönnun eftir þörfum hvers og eins. Einnig er mikilvægt að styrkja heimilismenn til sjálfshjálpar og auðvelda þeim að aðlagast breyttum aðstæðum. Ekki er síður  nauðsynlegt að tryggja vellíðan og öryggi heimilismanna og standa vörð um sjálfsmynd og sjálfsvirðingu þeirra. Þá er einnig mikilvægt að efla samvinnu og stuðning við fjölskyldur heimilismanna. Leitast er við að hafa fjölskyldufund einum til tveimur mánuðum eftir að heimilismaður flytur á heimilið og síðan eftir þörfum verði breytinga vart á líðan hans.
     

    Heiðmörk 2. hæð

    Heiðmörk er 10 rýma eining á 2 hæð heimilisins. Á Heiðmörk er garður sem er mikið notaður í góðum veðrum og er gjarnan staðið fyrir ræktun á grænmeti þar á sumrin. Allir íbúar eru með sér herbergi með sturtu og salerni, auk þess er lítil eldhúsaðstaða á öllum herbergjum. Nafnið vísar í Heiðmörkina sem er stærsta útivistarsvæðið í nágrenni Reykjavíkur og tilheyrir Græna treflinum sem umlykur allt Höfuðborgarsvæðið.

    Síminn á Heiðmörk er 535-2221, sími vakthafandi hjúkrunarfræðings er 535-2255.

    Þórsmörk 2. hæð

    Þórsmörk er 10 rýma eining á 2 hæð heimilisins. Á Þórsmörk eru skjólgóðar svalir, en eldhús og stofa eru í opnu björtu rými. Allir íbúar eru með sér herbergi með sturtu og salerni, auk þess er lítil eldhúsaðstaða á öllum herbergjum.  Nafnið vísar í einn fallegasta stað Íslands Þórsmörk sem kúrir á milli jökla á suðurlandi.

    Síminn á Þórsmörk er 535 -2226, sími vakthafandi hjúkrunarfræðings er 535-2255.

    Ásbyrgi 3. hæð

    Ásbyrgi er 10 rýma eining á 3 hæð heimilsins. Á Ásbyrgi eru skjólgóðar svalir, en eldhús og stofa eru í opnu björtu rými. Allir íbúar eru með sér herbergi með sturtu og salerni, auk þess er lítil eldhúsaðstaða á öllum herbergjum. Nafið vísar í Ásbyrgi á norðurlandi þar sem er gróskumikill birkiskógur umvefur hamrabelti og fyrir botni hvílir friðsæl tjörn sem er heimkynni rauðhöfðaanda á sumrin. Margir finna ákveðna helgi hvíla yfir staðnum og telja jafnvel að þar séu híbýli álfa og huldufólks.

    Síminn á Ásbyrgi  er 535 -2236, sími vakthafandi hjúkrunarfræðings er 535-2255.

    Snæfell 3. hæð

    Snæfell er 10 rýma eining á 3 hæð heimilisins. Á Snæfelli eru skjólgóðar svalir, en eldhús og stofa eru í opnu björtu rými. Allir íbúar eru með sér herbergi með sturtu og salerni, auk þess er lítil eldhúsaðstaða á öllum herbergjum. Nafnið vísar í fjallið Snæfell sem er hæsta fjall Íslands utan jökla (1833m) og er fjallið sjálft og svæðið umhverfis það innan marka Vatnajökulsþjóðgarðs. Snæfell er nokkuð keilulaga, enda forn megineldstöð sem hefur ekki rumskað í 10 þúsund ár. Mun það hafa myndast síðla á ísöld og er því yngsta eldstöð Austurlands. Vegna þess, hve hátt Snæfell rís hverfa efstu fannir þess ekki á sumrin og í því eru stuttir brattir skriðjöklar.

    Síminn á Snæfelli er 535 -2231, sími vakthafandi hjúkrunarfræðings er 535-2255.

    Dynjandi 4. hæð                        

    Dynjandi er 10 rýma eining á efstu hæð heimilisins. Á Dynjanda eru rúmgóðar svalir út af stofu en eldhús og stofa eru í opnu björtu rými. Allir íbúar eru með sér herbergi með sturtu og salerni, auk þess er lítil eldhúsaðstaða á öllum herbergjum. Nafnið vísar til mesta foss Vestfjarða Dynjanda. Hann má finna í Dynjandisvogi fyrir botni Arnarfjarðar. Fossinn og umhverfi hans hans var friðlýst sem náttúruvætti árið 1981, enda um einstaka náttúruperlu að ræða

    Síminn á Dynjanda er 535-2241, sími vakthafandi hjúkrunarfræðings er 535-2255.

    Arnastapi 4. hæð

    Arnastapi er 10 rýma eining á efstu hæð heimilisins. Á Arnastapa eru skjógóðar og rúmgóðar svalir af stofu en eldhús og stofa eru í opnu björtu rými. Allir íbúar eru með sér herbergi með sturtu og salerni, auk þess er lítil eldhúsaðstaða á öllum herbergjum. Nafnið vísar í lítið sjávarþorp á sunnanverðu Snæfellsnesi. Mikil náttúrufegurð er í grennd við Arnarstapa. Ströndin milli Stapa og Hellna var gerð að friðlandi 1979, en hún þykir sérkennileg og fögur á að líta.

    Síminn á Arnastapa er 535-2246, sími vakthafandi hjúkrunarfræðings er 535-2255.

     

     

     

     

    Undirflokkar

    Til baka takki