Við bjóðum alla hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða velkomna til okkar í heimsókn þar sem við erum oft að leita að nýjum hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum sem vilja takast á við ný og spennandi verkefni við öldrunarhjúkrun.
Á hjúkrunarsviði Hrafnistu er fylgst vel með nýjungum í hjúkrun og hvernig við getum nýtt okkur þær til bóta fyrir okkar skjólstæðinga. Þar má nefna meðferðarferlið fyrir deyjandi, gæðavísa frá Rai mælingum, rafrænni skráningu á hjúkrun í Sögukerfið. Hugmyndafræði og markmið hjúkrunar á Hrafnistu er að viðhalda færni hvers og eins, bæta líðan, efla sjálfsbjargargetu, sjá til þess að hinn aldraði geti haldið reisn sinni og teljum mikilvægt að einblína ekki á sjúkdóma og getuleysi, heldur leggja áherslu á styrkleika hvers og eins og veita aðstoð sem getur skapað gleði og ánægju í daglegu lífi.
Ef þú hefur áhuga endilega hafðu samband við undirritaða:
Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu Hafnarfirði
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. sími 693-9502
Bjarney Sigurðardóttir forstöðumaður Hrafnistu Kópavogi
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. sími 664-9555
Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu Reykjavík
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. simi 664-9400
Hrönn Ljótsdóttir forstöðumaður Hrafnistu Reykjanesbæ
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. sími 664-9550