Hildur Markúsdóttir, útibússtjóri Arion banka í Hafnarfirði, afhenti í gær Hrafnistu í Hafnarfirði glæsilega gjöf fyrir hönd bankans. Gjöfin er stórt málverk eftir hafnfirska listamanninn og rannsóknarlögreglumanninn Svein Björnsson, sem gerði sjósókn góð skil í verkum sínum.
Hálfdan Henrysson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs tók við gjöfinni og þakkaði Arion banka fyrir þessa höfðinglegu gjöf.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Hálfdan Henrysson stjórnarformaður Sjómannadagsráðs, Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði, Hildur Markúsdóttir frá Arion banka og Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu.
Fjarðarfréttir voru á staðnum og tók skemmtilegar myndir frá afhendingunni. Þær má skoða með því að smella á linkinn hér fyrir neðan.
http://www.fjardarfrettir.is/frettir/mannlif/gaf-hrafnistu-stort-malverk-eftir-svein-bjornsson