Dagdvöl á Hrafnistu Ísafold er með leyfi fyrir 4 sértæk rými, þ.e. fyrir einstaklinga með heilabilun og 16 almenn rými. Markmið með dagdvöl er að styðja fólk til þess að geta búið sem lengst heima, viðhalda og/eða auka færni, rjúfa félagslega einangrun og létta undir með aðstandendum.
Í dagdvöl eru m.a. samverustundir þar sem boðið er upp á upplestur, söng, klúbbastarf, göngutúra, leikfimisæfingar, handavinnu og ýmis konar félagsstarf, í dagdvöl er boðið upp á morgun-, hádegismat og miðdagskaffi.
Starfsfólk deildarinnar leggur mikla áherslu á að eiga gott samband við aðstandendur skjólstæðinga sinna.
Deildarstjóri dagdvalar er Svanhvít Guðmundsdóttir, svanhvit.gudmundsdottir[hja]hrafnista.is Sími 535 2250.
Umsókn um dagdvöl má nálgast hér.