Umhverfis- og framkvæmdaráð Hafnarfjarðar tilnefndi Hraunvang 1-3 við Hrafnistu í Hafnarfirði, snyrtilegustu fjölbýlishúsalóðina í Hafnarfirði á dögunum. Hálfdan Henrysson, formaður Sjómannadagsráðs veitti viðurkenningunni viðtöku.
Í lýsingu umhverfis- og framkvæmdaráðs segir: „Mjög fallegar og snyrtilegar lóðir þar sem hraunið fær notið sín. Aðgengi er gott og notendavænt fyrir íbúa, góðar gönguleiðir og rými til að setjast niður og njóta sólar og útsýnis.“