Næstu daga ætlar Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistuheimilanna, að vera með myndasýningu frá ferðum sínum um hálendi Íslands. Að þessu sinni ætlar hann að bjóða upp á myndasýningu frá Langasjó og fjallgarðinum Fögrufjöllum sem umlykja hann að hluta.
Pétur verður með myndasýninguna á eftirtöldum heimilum dagana 10. – 14. júlí nk.
- Hrafnistu Nesvöllum mánudaginn 10. júlí kl. 13:30.
- Hrafnistu Hlévangi mánudaginn 10. júlí kl. 14:30.
- Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 12. júlí kl. 13:30.
- Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 14. júlí kl. 13:00.
Allir velkomnir.